Fréttir og kveðjur til keppenda
Baráttufundur hjá Árósadeild
Árósadeildin hélt baráttufund í kvöld, laugardag fyrir Vasa, til heiðurs þeim vaska flokki sem mun leggja í hann á morgun. Eftir hjartnæma ræðu Gunnars formanns tók hin samhenta deild góðan prótein- og karbon kúr, hetjunum til samlætis. Til að tryggja úthaldið á morgun mun deildin kneyfa orkudrykki fram eftir kvöldi, ein lengi og þörf þykir og birgðir endast.
Með aðstoð nýjustu samskiptatækni tókst deildinni að ná sambandi við keppnisfólkið (Nonna, Svörtu Mömbu og Önnu Kristínu ) í kvöld og lá vel á þeim frændsystikinum og ekki spurning um að þau munu rúlla þessu upp á morgun. Mun leynivopnið, rútusamlokurnar, gegna þar mikilvægu hlutverki.
Á morgun, göngudaginn mikla, mun deildin öll, sem einn (eða tveir) maður fylgjast með framgangi mála á netinu, svo sem földi annarra áhugasamra. Við sendum þeim Nonna og Önnu okkar bestu baráttukveðjur og hlökkum til morgundagsins.
p.s. munið að hlaða i-podana og við vonum að belgseglin tvö sem við sendum á fimmtudaginn komi fyrir brottför og hann snúist í norðanátt!
Fyrir hönd Árósadeildar.
Gunnar formaður og aðrir gildir limir.
Á göngudegi
Óskum Önnu Kristínu, Skarphéðni, Baldri fóstbróður, Dodda fóstbróðurbróður og öllum hinum Vasahetjunum til hamingju með gönguna sem klárlega var gengin í vondu færi, sporleysi og hryggjum.
Kveðja frá Dóra og Sissý
Ég óska Vasafólki til hamingju með árangurinn, gaman að heyra að fólk er að bæta sig.
Kv, Sísí
Þátttökutafla f. Vasagönguna 2. mars
17:15| Framvinda | Smågan 10,5km | Mångsb. 23,7km | Risberg 34,5km | Evertsb. 47,1km | Oxberg 61,7km | Hökberg 70,9km | Eldris 81,1km | Mora 90km |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Jón Þór | 02:23:55 | 04:18:59 | - | - | - | - | - | - |
| Anna | 01:28:38 | 02:32:47 | 03:29:59 | 04:36:58 | 05:48:18 | 06:43:15 | 07:37:30 | 08:24:00 |
| Baldur | 00:56:06 | 01:45:00 | 02:26:17 | 03:22:27 | 04:21:46 | 05:08:37 | 05:54:00 | 06:32:39 |
| Daníel | - | - | - | - | - | - | - | - |
| Grétar Orri | 01:29:53 | 02:47:22 | 03:47:52 | 05:03:04 | 06:20:51 | 07:20:45 | 08:17:21 | 09:01:26 |
| Jörundur | 01:20:39 | 02:23:19 | 03:24:31 | 04:43:14 | 05:57:11 | 06:55:04 | 07:50:16 | 08:40:31 |
| Magnús | - | - | - | - | - | - | - | - |
| Skarphéðinn | 01:26:54 | 02:27:40 | 03:30:03 | 04:39:48 | 05:55:56 | 06:55:31 | 07:51:15 | 08:35:19 |
| Stefán Snær | 01:29:52 | 02:47:22 | 03:47:52 | 05:03:03 | 06:20:37 | 07:10:39 | 07:57:41 | 08:40:18 |
| Þóroddur I. | 01:59:44 | 03:20:40 | 04:21:56 | 05:30:54 | 06:45:22 | 07:38:53 | 08:28:21 | 09:11:27 |
| Þóroddur Þ. | 02:17:10 | 03:37:30 | 04:53:52 | 06:22:40 | - | - | - | - |
Þá eru allir töflukeppendur komnir í mark og ritstjóri slekkur á sjálfvirkninni. Kveðjur til keppenda og hvers kyns sögur úr brautinni eru að sjálfsögðu vel þegnar og verður bætt inn eftir því sem þær kunna að berast.
Anna og Skarphéðinn eru komin í mark og eru bæði að bæta sig mikið frá í fyrra. Anna bætir sig um 1:26 og Skarphéðinn um ca. 1:20, Anna kom í mark í 318. sæti í kvennaflokki sem er 192 sætum ofar en í fyrra.
Samfloti þeirra bræðra Stefáns og Grétars lauk greinilega í Oxberg, í Eldris er Stefán með um 20 mínútna forskot á litla bróður.
Ritstjóri hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að Nonna hafi strax verið ljóst í löngu brekkunni upp frá ræsingunni að þetta yrði erfitt, en hann seiglaðist engu að síður í Mångsbodarna (á tæpum 2 klst. lengri tíma en á mánudag).
Og þar runnu Jörundur og Stefán Snær í mark, sá síðarnefndi sterkari á endasprettinum.
Þá er ritstjóri mættur aftur að lyklaborðinu, en framvindan skýrir sig að mestu sjálf. Baldur "fóstbróðir" er kominn í mark á prýðilegum tíma, Anna er komin lengst hinna.
Nonni hefur hætt í Mångsbodarna, ekki ólíklegt að gangan á mánudag sitji í skrokknum. Þóroddur Þóroddsson hefur hætt í Evertsberg.
Annars virðist helst fréttnæmt að Stefán Snær er að stinga bróður sinn af, er heilum 14 sekúndum á undan honum í Oxberg!
Ritstjóri þarf að bregða sér af bæ í nokkra tíma, en treystir á sjálfvirknina á meðan. Innsendir tölvupóstar (á ritstjori@vasa.thorarinn.com) verða settir á vefinn þegar færi gefst.
Stefán Snær og Grétar Orri virðast sem samlímdir í brautinni, en ekki bólar á Nonna í Mångsbodarna þannig að ritstjóra grunar að hann hafi kannski hætt í Smågan.
Stöðuskýrsla Vasapabba kl. 10
Sit og fylgist spenntur með útsendingum SVT. Það gera Dóri og Sissý líka sem stödd eru í Köben.
Færið er öllum erfitt, líka þeim sem slást um sigur. Það snjóaði í morgun víða í sporinu, einkum kringum startið. Það gerir að það vill festast undir og líka að litlir ísklumpar myndast í sporinu. Vegna hlýinda undanfarið er sporið mjúkt svo að það hvarf fljótlega. Menn kvarta undan að hafa ekkert spor, þetta verði ,,jobbigt’’ en flestir kátir og hafa það ,,kul’’.
Maðurinn með reipið í Mångsbodarna slengdi því bara til jarðar og sagði að ekki yrði dregið fyrir þar. Það væru alltof margir ókomnir og það var þétt kös við innkomuna þangað en margir færu trúlega í bussinn. Einn Svíi sem talað var við sagði að hann þekkti 7-tíma menn sem þá voru ekki enn komnir þangað. Þannig að þetta er ekki létt!!.
Okkar fólk sem á annað borð lagði á stað hefur skilað sér allt í gegnum Smågan en mis hratt eins og þið sjáið. Siggi segir að opna sporið sitji nokkuð í Nonna svo það er aldrei að vita hve lengi hann heldur áfram enda búinn með skylduna með glæsibrag.
Bestu kveðjur,
Stebbi vasapabbi
Ritstjóri bendir á beina útsendingu SVT frá Vasa, verður opið á vefnum í allan dag.
Sérstaka athygli ritstjóra vakti viðtal við tvo kappa sem voru að tvímenna á sama skíðaparinu. Sá fremri er "veteran" og fékk því að stýra, sá aftari er "bara" að ganga sína 25. göngu í dag og þetta er í 17. skipti sem þeir tvímenna á skíðum. Ekki er öll vitleysan eins.
Eins og sjá má af athugasemd hér fyrir ofan hefur ritstjóri nú tæknivætt síðuna enn frekar og nú er staða keppenda sótt sjálfkrafa á 5 mínútna fresti (að því gefnu að samband náist).
Von er á skýrslu vasapabba sem situr við sænska sjónvarpið og fylgist með, en þar er fyrst fréttnæmt að aðstæður eru mjög erfiðar í upphafi, svo slæmar að hætt var við að strekkja reipið í Smågan þar sem bara voru tiltækar 20 rútur til að ferja heim þá sem hætta.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig mönnum miðar í þessu færi. Magnús mun vera slæmur í baki og lagði því ekki af stað, Daníel virðist heldur ekki hafa verið í ræsingu.
Í framhaldi af göngu Nonna:
19:54Til hamingju með glæsilegan árangur Nonni Svarta Mamba Sigurðsson. Glæsilegur tími og flottur endasprettur.
Nú er bara spurning hvað sjósundmaðurinn Skúli öðru nafni Blái Lótusinn gerir í málinu nú þegar bræður hans Gunnar Rauði Baróninn Sigurðsson og Svarta Mamban eru búnir að rúlla þessu upp?
Kveðja
Dóri
21:08Til hamingju Jón Þór, núna Vasabróðir. Velkominn í hópinn.
Kveðja
Skarphéðinn
23:20Glææsilegur árangur Nonni, ég læt skot úr Hnjúkaselsátt ekki draga úr samfögnuði.
Ég gæti blaðrað eitthvað um stíft æfingaprógram, en ætli nokkur myndi taka mark á mér.
VASA 2009, I´m coming for you.
kveðja,
Föl-blái lótusinn
Opið spor á mánudegi:
| Framvinda | 10,5km | 23,7km | 34,5km | 47,1km | 61,7km | 70,9km | 81,1km | Mora(90) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Jón Þór | 1:10 | 2:26 | 3:34 | 5:01 | 6:30 | 7:38 | 8:39 | 09:33:49 |
| Ingvar | 1:02 | 2:06 | 3:00 | 4:12 | 5:22 | 6:17 | 7:09 | 07:55:48 |
| Hraðabreyt. | ||||||||
| Jón Þór | - | +16% | -10% | -8% | +14% | -19% | +25% | -4% |
| Ingvar | - | +21% | -3% | -13% | +20% | -20% | +17% | -1% |
Mánudagstíðindi
15:55 Nonninn er lentur!
15:30 Ingvar er kominn í mark á prýðilegum tíma og Nonni væntanlegur gegnum hliðið í Mora eftir um hálftíma. Það er erfitt að bera saman tíma við "alvöru" göngu, þar sem þrengslin í brautinni eru örugglega minni í opna sporinu (hvað þá á mánudegi), en þess má þó geta að Nonni er núna með um 1:20 betri tíma en Gunni var 2006 (en um 23 mínútum lakari tími en Stebbi föðurbróðir hans í gær).
Þetta er glæsilegt hjá drengnum og verður gott andlegt vegarnesti fyrir "alvöruna" næsta sunnudag.
11:35 Þá er Nonni kominn lengra en hann hefur áður farið í Vasagöngunni og Evertsberg að baki. Hann kom í Evertsberg 1:40 fyrr en 2007. Eitthvað virðist færið að þyngjast, því á síðustu leggjum hefur hægst bæði á Ingvari og Nonna.
Ritstjóri skellti til gamans inn hraðabreytingum milli leggja (og vonar að vinnuveitandinn taki ekki eftir þessu dundi í vinnutímanum). Ingvar virðist kominn í betra færi, eða brekkurnar niður frá Evertsberg farnar að hjálpa til.
10:55 Ritstjóri fór línuvillt og setti Evertsberg tíma Ingvars í línuna hans Nonna, beðist er velvirðingar á því - Nonni er ókominn í Evertsberg. Eftirfarandi póstur var að berast varðandi símamál Gunna:
Gunni er að verða batteríislaus og er með slökkt á símanum til að geta heyrt frá Nonna í lokin. En þetta gengur vel hjá stráknum, hann er vel stemmdur, smá frost og sæmilegt færi og Gunni var ánægður með bróður sinn.
Anna Kristín Vasa frænka
10:20 Nonni brunar áfram og hefur nú bætt 2007 tímann sinn um rúmar 80 mínútur í Risberg.
9:35 Samkvæmt sænskum á sporið að vera þokkalegt. Snjóaði í nótt á fyrri hluta brautarinnar og rigndi á þann síðari, og þar á að vera ís í sporinu sem gerir það hraðara, en vandasamara í skíða-vallningu.
Þess má geta að í Mångsbodarna (eftir 23,7 km) er Nonni með rúmlega klukkustund betri tíma en þegar hann spreytti sig á Vasagöngunni í fyrra.
9:15 Í dag er fylgst með Nonna frænda og Ingvari í brautinni. Gunnar Nonnabróðir mun vera á hliðarlínunni í andlega stuðningnum, enda innvígður "vasi". Ritstjóri er ekki með símanúmer Gunnars, þannig að staðkunnugir lesendur mættu biðja Gunna að senda sms á 895 7561 til að koma á beintengingu frétta úr sporinu.
Framgangan í opnu spori á sunnudegi:
| Framvinda | 10,5km | 23,7km | 34,5km | 47,1km | 61,7km | 70,9km | 81,1km | Mora(90) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Óttar | 1:03 | 2:09 | 3:05 | 4:20 | 5:42 | 6:44 | 7:53 | 8:51:40 |
| Páll | 1:13 | 2:30 | 3:36 | 4:57 | 6:28 | 7:37 | 8:49 | 9:52:54 |
| Pétur | 1:04 | 2:09 | 3:06 | 4:22 | 5:45 | 6:49 | 7:57 | 8:50:52 |
| Guttormur | 1:15 | 2:31 | 3:54 | 5:25 | 7:19 | 8:32 | 9:51 | 11:00:54 |
| Óli | 1:08 | 2:17 | 3:27 | 4:49 | 6:14 | 7:24 | 8:34 | 9:31:28 |
| Kristófer | 1:00 | 2:05 | 3:02 | 4:13 | 5:30 | 6:36 | 7:37 | 8:32:28 |
| Stefán | 1:10 | 2:18 | 3:16 | 4:27 | 5:47 | 6:53 | 8:16 | 9:12:11 |
| Aðalsteinn | ||||||||
| Björn | 1:07 | 2:14 | 3:10 | 4:21 | 5:35 | 6:36 | 7:47 | 8:54:41 |
| Karl | 1:11 | 2:28 | 3:33 | 5:13 | 6:46 | 8:07 | 9:22 | 10:29:52 |
Raus ritstjóra
17:00 Fyrir skömmu hringdi Halldór í Stebba vasapabba og fékk skýrslu. Færið þótti þungt og töluverð hláka þannig að á köflum voru menn að skíða gegnum polla. Færið var einnig að þyngjast eftir því sem leið á, öfugt við það sem Íslendingarnir hafa verið að lenda í undanfarin ár.
Glöggir menn tóku eftir því að heldur hægðist á vasapabbanum eftir að hafa haldið góðum skriði framan af. Ástæða þess er að hann tognaði í nára þegar gripið gaf sig á leið upp brekku einhversstaðar í nánd við Hökberg og það háði honum það sem eftir var í mark. Annars virðist prýðilegt hljóðið í mönnum.
Gutti ætti að vera væntanlegur í mark á hverri stundu.
16:30
Þakka þér ritstjóri fyrir þessa fínu síðu.
Það er til marks um tækni nútímans að hér sit ég á Egilsstöðum með tölvuna fyrir framan mig og sendi upplýsingar um stöðu mála, með reglulegu millibili, símleiðis til "Guttanna" sem eru á "hliðarlínunni" í Vasa-landi.
Ég held ég láti kveðskapinn vera að sinni en sendi þess í stað bestu kveðjur og hamingjuóskir til allra kappanna héðan af Selásnum.
Elsa Guðný og co
15:57 Eitthvað tímabundi sambandsleysi varð við vefþjóninn. Beðist er velvirðingar á því.
15:55 Þá er Óli kominn í mark og Páll væntanlegur á hverri stundu. Bara rétt til að minna okkur sem sitjum á rassinum og ýtum á "Refresh" á hversu mikið afrek þetta er, þá jafngildir vegalengdin sem gengin er fjarlægðinni frá Reykjavík í Skálholt, eða frá Egilsstöðum á Vopnafjörð um Hellisheiði. (skv. samantekt Vegagerðarinnar).
15:40 Ef rýnt er í nýjustu stöðu mála er um helmingur "okkar manna" komnir í mark. Sænskir reiknimeistarar gera ráð fyrir þeim sem upp á vantar í mark sem hér segir: Páll kl. 15:59, Gutti kl. 17:01, Óli kl. 15:42 og Karl 16:35 (allt að íslenskum tíma).
Fróðlegt er að bera saman tíma Óttars, Péturs og Björns í töflunni hér fyrir ofan. Óttar var fremstur framan af, Björn hefur komist fram úr Pétri við Evertsberg og sigið fram úr Óttari eftir ca. 50 km. Loks hefur Pétur átt glæsilegan endasprett og brunað fram úr þeim báðum. Líklega hefur Pétur skilið Óttar eftir innanbæjar í Mora miðað við hversu litlu munar.
15:25 Þá er ritstjóri kominn aftur til starfa og reynir að henda reiður á tímum manna. Þeir eru flestir farnir að skila sér í mark á prýðilegum tímum. Meira um það seinna.
Hér eru tvær nýlegar kveðjur:
Heill og sæll.
Þakka þér fyrir þína frábæru síðu. Gamlir "Vasar" eins og ég geta ekki slitið sig frá tölvunni á göngudögum. Mér sýnist drengirnir ætla að slá fyrri göngutíma sína hressilega út. Það er áhyggjuefni hvort hægt verður að stoppa þá í markinu í Mora. Mér datt þetta í hug:Þessir karlar þeir kunna að skora
og keyra eins hratt og þeir þora,
en til þess að stöðva
þeirra tröllauknu vöðva
þarf að skjóta þá niður í Mora.Bestu kveðjur
Bjarni G Björgvinsson
Vasafari 2006.
Gaman að sjá hvað okkar fólki af Héraði gengur vel, amk. þeim sem heilir eru heilsu.
Nú eru það kunnir svaðilfarar sem strekkjast yfir sænskar og vonandi freðnar grundir og virðist sækjast vel gangan. Æfingin skapar meistarann stendur skrifað, en fleira kann að koma til.
Þeir efldust af gortinu og gapinu
það gerði þá létta í skapinu.
Í engu sér hlífa
og áfram nú svífa.
Já þett´ eru "karlar í krapinu".Báráttu kveðjur til karlanna og haminguóskir til kvennanna á þeirra degi, samkvæmt almanakinu.
Stefán og Anna Björk.
11:45 Gutti kominn gegnum Evertsberg og Kristófer í Oxberg. Staðfesting hefur borist (eftir óbeinum leiðum) á því að það er flensa sem kemur í veg fyrir þátttöku Aðalsteins.
Ritstjóri tekur nú uppfærsluhlé um sinn sökum annarra skuldbindinga.
11:40 Þættinum hefur borist bréf:
Heill og sæll Þórarinn.
Takk fyrir að setja upp þína skemmtilegu síðu.
Karl Laur. og Björn Ingvars. eru að keppa í dag, nærð þú þeim ekki inn í þetta með hinum.
Ég sit sveittur heima, klæddur í Craft outfitt og fylgist með félögum mínum og færi þeim baráttukveðjur mínar.Kveðja
Helgi Kjærnested
Vasafari 2007
Þeim félögum hefur verið bætt í yfirlitin (ritstjóri hélt þeir gengju ekki fyrr en á morgun).
11:30 Yfirlitskortið er komið í lag hjá Svíunum, en gefur svo sem ekki mikið meiri upplýsingar en tímatökusíðurnar sem vísað er á af vinstri vængnum.
11:20 Þá eru skv. tímatökusíðunum allir komnir gegnum Evertsberg (eftir 47 km) nema Gutti. Til samanburðar má nefna að 2006 setti vasapabbi persónulegt met og gekk á tæpum 10 tímum, hann var þá í Evertsberg eftir 5:29. Sama ár gekk Pétur á 11:23 (sem einnig telst persónulegt met) og hann var 6:20 í Evertsberg, þannig að þetta verða að teljast fantagóðir tímar hjá þeim í dag. Nú er bara að vona að þrekið endist.
10:50 Samkvæmt veðuryfirliti er gert ráð fyrir 4-8 stiga hita í dag, hægum vindi og 95% raka. Miðað við prýðilega tíma er ekki annað að sjá en menn séu með nokkuð rétt "völluð" skíði. Á morgun verður eitthvað svalara og minni raki, en þó yfir frostmarki.
10:40 Þá er ritstjóri risinn, búinn að uppfæra framvinduyfirlitið og kempurnar í opna sporinu að verða hálfnaðar með gönguna. Ekki hafa borist nein nýleg fréttaskeyti frá svíaríki, en virðist sem Aðalsteinn hafi ekki hafið keppni - líklega vegna veikinda.
Annars virðist mönnum ganga prýðilega, til dæmis er Pétur með um tveggja tíma forskot á sjálfan sig 2006, þ.e. er með tæplega 2 klukkustunda betri tíma í Evertsberg en hann hafði 2006. Stefán vasapabbi er með um klukkutíma bætingu í Evertsberg.
Eitthvað þurfa sænskir tölvunördar að girða sig í brók fyrir alvöru gönguna, þar sem fína yfirlitskortið þeirra virðist ekki ráða við verkefnið og er bilað.
Kveðja frá Dóra (vasapabba-) bróður
Sendi mínar bestu Vasakveðjur til allra keppenda í Vasavikunni og sendi smá hugleiðingu um opna sporið hjá Stebba bróður og félögum:
Á morgun þeir marser’ og masa
og munu ei faller’ og hrasa
með blóðbragð á tungu
og útþanin lungu
vasklega rúlla upp VasaStebbi snemma mun kvabba
með stýrur í augum mun rabba
með graut út á kinn
þeir hlusta um sinn
á rausið í vasapabbaÍ bílnum mun alvaran byrja
brátt munu allir þar kyrja
hugleið’ og biðja
með drykk’ um sig miðja
að skíðin þeir þurf’ ekki að smyrjaÍ rásmarki þeir munu bíða,
biðtíminn hægt mun þar líða
Af starti þeir missa
ef þurfa að pissa
Til Mora þeir ætla að skíðaSíðan rennur upp stundin
Start! Engin er bundinn
Þeir masa til Múra
milli skina og skúra
Létt verður á þeim lundinGóða skemmtun og gangi ykkur öllum sem best.
Baráttukveðjur frá
Dóra vasaföðurbróður
Að kvennavasa afloknu
Pistill fréttaritara:
Góðar kveðjur úr austurvegi
Í dag gengu þrjár Egilsstaðavalkyrjur, Ólöf ,,Lolla'' Ragnarsdóttir, Karen Erla Erlingsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir Kvennavasa 30 km milli Oxberg og Mora. Með þeim gekk Seltirningurinn og Svarfdælingurinn Arnfríður Gísladóttir viðhengi hópsins. Er skemmst frá því að segja að þær luku allar göngunni með glæsibrag. Tveimur tímum eftir að þær voru allar komnar í mark og baðaðar, glaðar og mettar á heimleið voru konur enn að tínast í mark.
Við karlarnir erum stoltir af okkar konum en finnum óneitanlega fyrir pressu á að standa okkur jafn vel á morgun þegar stóri dagurinn okka rennur upp. Það verður vaknað upp úr kl. 5 til að nærast, drekka síðasta skammt af ógeðsorkurdrykknum og klæðast gallanum. Svo er að sækja skíðin sem smyrjarar hafa staðið sveittir við í alla nótt að gera klár, mæta í rásmark í tíma fyrir kl.7 þegar leggja má af stað. Vegna hlákuspár hafa menn engst vegna þess hvernig á að útbúa skíðin og klæða sig. Hvorugt verður hefðbundið og ljóst að mikið af verslunarvöru mun liggja ónotað þennan daginn.
Á morgun heldur kvenfélagið Bláklukkan upp á 60 ára afmæli sitt. Við karlar erum stoltir og þakklátir okkar öfluga kvenfélagi sem hefur lagt mörgum góðum málstað lið í árana rás. Í tilefni afmælisins sem ber upp á göngudag okkar heitum við á félagið okkur til velgengis á morgun.
Austfirskar hetjur og viðhengi þeirra samgleðjast nú í kvöld með glæstum fulltrúum íslenskar kvenþjóðar, sem ennþá einusinni voru landi og þjóð til sóma.
Kveðja úr sænsku dölunum
Páll Gíslason
Sending fréttaritara
Nú er stuttvasanu lokið og komst 50% Íslendinganna í mark, en illvíg pest þjáði Gyðu, eins og reyndar fleiri í hennar föruneyti. En Linda Karen sveif í mark á tímanum 3:33:32 og var það´mál manna við marklínu, að hún hafi verið þjóð sinni til sóma.
Á morgun eru það konurnar, sama leið, 30 Km frá Oxberg til Mora. Ræst er í þremur áföngum, fremst fer Ólöf um 10.50 að ísl tíma, næstar eru Karen og Guðbjörg, 15 mín seiinna og Arnfríður er ræst síðust 30 mín seinna. Sé miðað við árangur Lindu, má búast við að þær verði að nálgast marklínu um 14:00 að ísl tíma eða svo. Allt er þetta háð veðri, en meir um það síðar.
Þeir Egilstaðakappar eru sem óðast að undirbúa sig, með inntöku orkudrykkja, klísturhreinsun, kveðskap og ýmisskonar hópefli.
Er hér dæmi um hvað hópurinn hefst að:
Ei væsir um vasaflokkinn
Sem ¨vallar¨ nú á sér skrokkinn
Með kremum og klístri
Og kúgast, á blístri
Af karbó og kemst ekki í sokkinn.Þeirra udstyr þó allt er í orden
Það besta er býðst hér í Norden
og keypt hafa klæði
með silfurþræði
Sem kennd eru við Craft von lorden.Það halda skal á þeim hita
Og verja gegn óværu og svita
Sem gott er á labbi
Segir Vasahlaupspabbi
Sem allt á að skilja og vita.Palli sig kvelur og plagar
Samviskan pínir og nagar
Á ég að túra?
Eða að kúra?
Ákvörðun tekin er dagar!!Kjaftfor er Óttar og keikur
Hvergi við gönguna smeykur
Kvennleg er bringa
Út geirvörtur springa
Að vasast er barnanna leikur!Raupsamur píslin hann Pétur
Puðaði í ræktinni í vetur
Áfram svo skíðar
Um allar hlíðar
Harðfisk og hákarla étur.Elstur er karlinn hér krapa
Kjagar svo minnir á apa
Rauðvín að staupa
Klæði að kaupa
Er Stefán sér alveg að tapa?Eins og sjá má er mikil unun að horfa á þetta hrausta fólk að leik og ati.
Það sem setur þó örlítið strik í reikninginn er veðurspáin eða öllu heldur veðurspárnar, en í fjölmiðlaflóru nútímans er það svo að finna má margar veðurspár og eru þær mis hagstæðar eins og gengur.
Okkur væri mikil þægð og stuðningur ef hægt væri að senda hagstæða spá, með amk 2 stiga frosti yfir daginn, bæði laugardag og sunnudag, en núverandi spár segja allt að 6°C hiti um miðjan dag á sunnudag, ívið kaldara á laugadag. Það er hinsvegar rétt að taka fram að ekki þýðir að ¨senda spá sem er yfir 0 gráður.
Annars er hópurinn glaður og lita menn björtum augum til næstu daga.
Kv
Páll Gíslason
einskonar viðhengi við austfirsku hetjurnarPS: Því miður gleymdust tölvutengingar við myndavélar svo ekki hefur tekist að senda myndir
Systur hafa lokið keppni
Samkvæmt heimildarmanni á vettvangi lagði Gyða lasin af stað og þurfti að hætta keppni í Hökberg. Linda hafði lent í brasi með gripið, en eftir að hafa fengið klístur undir skíðin fór henni að ganga betur og tímatakan sýnir að hún jók hraðann á hverjum legg. Linda fór 30 kílómetrana á 3:33:32.
Guttormsdætur lagðar í hann
Gyða Guttormsdóttir og Linda Guttormsdóttir eru núna lagðar af stað í Kort Vasan.
Við fyrstu stöð, við Oxberg, er Linda með sekúndu forskot, sem verður að teljast ómarktækur munur. Það mun skýrast þegar líður á gönguna hvort þær verða áfram samferða eða hvort keppnisskapið lætur á sér kræla.
Miðað við reynslu ritstjóra af þvögum eftir ræsingu, er lítið að marka áætlaðan lokatíma fyrr en lengra er liðið á gönguna, en áætlun gerir nú ráð fyrir þeim í mark um kl. 16 að íslenskum tíma (rúmlega 17 að sænskum).
Tímatökutenglar klárir
Þá eru sænskir frændur búnir að virkja tenglana á tímatökur, nafnalistinn í vinstri vængnum hefur því verið tenglavæddur að mestu.
Ritstjóri á enn eftir að fullreyna að tengja beint inn á kortið góða fyrir einstaka garpa.
Það hefur einnig fengist staðfest (sem grunt var) að Birna frænka gengur ekki í ár, og heldur ekki félagi Jóns Þórs sem ætlaði að taka við hennar númeri.
Þær Guttormsdætur spreyta sig fyrstar Íslendinganna í stuttvasa á morgun. Ekki er þó lofað nema mjög stopulum uppfærslum á vinnutíma.
Skeyti frá Sverige
Kæri ritstjóri Vasatíðinda.
Þökkum þér fyrir að hafa sett síðuna upp aftur og efum ekki að heimsóknir á hana verða margar næstu daga.
Hér sitja 7 áhugasamir þátttakendur í einni af 3 íbúðum sem keppendur frá Egilsstöðum búa í fyrir hlaupið. Flest er gott að frétta fyrir utan hláku sem staðið hefur síðan við komum og ógnar sjálfu undirlaginu, snjónum. Vonandi verður eitthvað af honum eftir þegar stundin rennur upp. Þá er pest að stinga sér niður í grunnbúðum Guttanna.
Æfingum er nú lokið enda sjálfhætt því í morgun var kóf og beljandi líkt og löngum vill vera á Fjarðarheiðinni.
Liggja nú göngumenn í kolvetnadrykkjum til þess að hlaða sig orku fyrir átökin. Þetta eru sannkallaðir ógeðsdrykkir bæði fyrir þá sem reyna að pína þá niður en einnig fyrir aðstandendur sem verða að dvelja í sama andrúmslofti. Tímanum er líka varið í að koma við í verslunartjöldum og reynt að finna eitthvað sem gæti verið gagn í að eiga. Allt hitt er löngu búið að kaupa og rúmlega það.
Vekjum athygli ritstjóra á að kvennavasa er laugardaginn 23. febrúar en ekki viku síðar eins og vefurinn greinir. Leggjum við áherslu á að þetta verði leiðrétt sem fyrst.
Með bestu kveðjum
Vasafarar að austanPáll Gíslason
Ritstjóri þakkar kveðjuna og hefur leiðrétt dagsetningu kennavasa.
Vasavikan nálgast
Þá er að dusta rykið af þessu eitt árið enn.
Á vinstri vængnum má sjá drjúga nafnalista úr hinum ýmsu göngum Vasavikunnar. Nöfnin verða tengd við tímatökur þegar sænskum frændum þóknast að gefa út tímatökunúmer þeirra.
Í ár virðist í tísku að ganga opið spor og þar eru a.m.k. 16 Íslendingar skráðir til göngu, þar á meðal þeir 12 sem Stefán vasapabbi hefur mælst til að fylgst verði með og sjá má í áðurnefndum vinstri væng.
30 km Stuttvasan er á föstudaginn 22. febrúar og þar eru þær systur Gyða og Linda Guttormsdætur meðal keppenda, auk fjögurra annarra íslenskra kvenna.
Í kvennavasa (Tjejvasan) daginn eftir viku síðar eru 6 íslenskar konur skráðar, en þar eru líka gengnir 30 km.
Stóra Vasagangan er svo sunnudaginn 2. mars. Skv. vefskráningum eru þar 55 íslenskir keppendur í ár.
Af náfrændahópi ritstjóra er það aðeins Jón Þór Sigurðsson sem spreytir sig þriðja sinni á göngunni (í raun fjórða því hann verður þá búinn að taka þátt í opnu spori mánudeginum áður). Birna frænka er reyndar enn skráð til leiks en ritstjóra skilst að ólíklegt sé að hún spenni á sig skíðin.
Annars skal áhugasömum bent á nýja kortasíðu göngunnarhlaupsins þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu einstakra keppenda í brautinni jafnóðum.
Ritstjóri á eftir að sjá hvort (og þá hvernig) hægt verður að vísa beint inn á þá síðu fyrir einstaka keppendur, en þangað til geta áhugasamir valið viðeigandi hlaup og tiltekið "Club" sem "iceland".
Nánar um þetta allt þegar nær dregur. Kveðjur og athugasemdir má líkt og áður senda í tölvupósti á netfangið hér fyrir neðan.
Ritstjórinn.
Netfang ritstjórnar: ritstjori@vasa.thorarinn.com
