Vasabræður 2004
Forsíða
Dagbók
Fróðleiksmolar
Leiðarlýsing
Vasa-vísan

Vasaloppet.se
Á keppnisdag

(Tölvupóstfang bræðranna hefur verið aftengt)

Aðsend hvatningarvísa:
Eiðabræður einbeittir
eru menn sem þora.
Gangið hægt um gleðidyr
en gallharðir til Mora!
Össur Kristinsson

Fara á vef Vasahlaupsins

Fróðleiksmolar!

Þessi skíðaganga sem árlega dregur að sér um 15.000 þátttakendur var sett á laggirnar fyrir 80 árum til minningar um fræga skíðagöngu á þessum slóðum.

Nú hafa samtals rúmlega 364.000 manns tekið þátt í göngunni.

Árið 1521 kom Gustaf Vasa til Mora í Dalahéraði norðvestan við Stokkhólm til þess að leita sér stuðnings hjá höfðingjum Dalamanna við þá ætlan hans að rísa gegn yfirráðum Dana yfir Svíþjóð. Dalamenn höfnuðu í fyrstu málaleitan Gústafs Vasa en þegar þeir fréttu af fjöldamorðum Dana á sænskum höfðingjum í Stokkhólmi sáu þeir sig um hönd en þá var Gústaf Vasa flúinn áleiðis til Noregs, vonsvikinn og hundeltur af útsendurum Dana.

Voru þá sendir af stað tveir bestu skíðagöngumenn í Dölunum og náðu þeir honum nálægt þeim stað þar sem nú er bærinn Sälen 90 kílómetrum norðvestan við Mora. Þessi sendiför varð til þess að Gústaf Vasa snéri við og leiddi síðan uppreisn Svía gegn Dönum og varð konungur þeirra. Stofnaði hann síðar m.a. þjóðþing Svíþjóðar Riksdagen 1527. Gangan þótti mikið afrek á sinni tíð og mörkuðu þessir atburðir tímamót í sögu Svíþjóðar.