Aðsend hvatningarvísa:
Eiðabræður einbeittir
eru menn sem þora.
Gangið hægt um gleðidyr
en gallharðir til Mora! Össur Kristinsson
Vasagöngu, bræður, fáum ei flúið
Alkul, nótt, en ekki til baka snúið
Sálartetrið skroppið saman, fúið
Andnauð, sviti, tár og þrekið lúið
Gall í munni, kyngt og áfram knúið
Aldrei skal reip’ í bræðrabringu núið
Nóttin nálgast, horfið tíví krúið
Gangan senn á enda því þið trúið
Alsæla, bræður, þetta er búið!